miðvikudagur, júlí 13

Lífið.....

er yndislegt. Nú sit ég við tölvuna í vinnunni og ég var að naglalakka mig. ( reyndar bara eina nögl, því naglalakkið á henni skemmdist í morgun) Og þá er nú við hæfi að skella sér í kaffi

föstudagur, júlí 8

dagur 1

Jæja þá er fyrsti dagurinn í nýju vinnunni búinn, og hann var alveg ágætur, var reyndar soldið lengi að vakna því það voru engin brjáluð börn til að vekja mann. Svo er ég búin að læra nýtt spil og alles, og grei Aldís lendir í því að leiðbeina mér alveg helling..
Svo er ég alveg viss um að hún Ella Jóna syngi mjög vel, einhverstaðar hlítur sonur hennar að erfa sína sönghæfileika.

mánudagur, júlí 4

Ekkert sumarfrí

Ég byrja semsagt að vinna í Forsvar föstudaginn 8 júlí, eða sama dag og mitt langþráða sumarfrí átti að byrja.
Svo er ég að gera tilraunir til að brjótast út úr minni einsemd og neikvæðni, mætti á fótboltaæfingu í kvöld, til að vígja nýju fótboltaskóna mína. En það mætti bara ein önnur stúlka, hún Hjördís elskan. Hún dró mig með sér að skokka nokkra hringi um völlin og ég dró hana til að labba líka nokkra :) og svo voru gerðar nokkrar æfingar, kenndar við maga. Jámm og svo er víst búið að skrá mig í eitthvað starfsmannaborðaeitthvað á miðvikudagskvöld, þannig að ég neiðist bara til að hitta annað fólk en Munda. Jámm og í vetur mun ég leggja stund á vinnu, skóla og tónlistarskóla, það verður alveg nóg að gera.