mánudagur, mars 15

kominn tími til að blogga

Jæja
þessi pottaferð var nú barasta ágæt, soldið heitt og soldið kallt, en annars er ég alvega til í að endurtaka þetta einhvertíman aftur. Ballið, jámmmm, þessi mikla þjónusta sem maður fær á Þinghúsinu er nú barasta ekkert sniðug, ég ætlaði nebblega ekki að fá mér neitt að drekka þarna, en nei! þá þurfti Kjartna endilega að koma með alveg fullt af bjór að borðinu þar sem ég sat og það þýddi að ég þurfti ekki að standa upp og labba alla þessa löngu leið á barinn til að kaupa mér einn öl, þannig að ég splæsti í einn bjór. Og ætlaði að láta það vera nóg, en ó nei! þegar ég var rétt búinn að klára hann, þá koma Kjartan aftur, þannig að ég neiddist til að kaupa annan bjór..... Hljómsveitin, við skulum ekkert minnast á hana, hún var bara þarna, ekkert meira um það.

æll bí bakk.........

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim