miðvikudagur, nóvember 26

::: BJÓR :::

klukkið er 20:56. og ég er að drekka ógeðslega Woodys þvælu, því það er ekki til venjulegur bjór. En allavega þa´er ég að drekka þetta ógeð til að slaka á, ég er að fara að filma sjálfan mig, er að fara að halda ræðu.

Er örugglega búin að vera 10 mínútur með 3 sopa af þessu ógeði.

framhald....
Nú er klukkan 23:25 og ég er loksins búin.
Sko fyrst þurfti ég að tala soldið mikið í símann, fyrst við ömmu og svo við Munda. Og ég var ekki enn búinn með bjórinn ojjjj. Haldið þið ekki bara að ég hafi þurft að fara að horfa á "that 70´s show" (núna var bjórinn búinn) meðan ég sat og horfði á tívíið þá dvínuðu þessi litlu áhrif sem mér höfðu hlotnast með þessari bjórdrykkju. Þannig! að hafa þurft að þvæla þessu ógeði í sig var gjörsamlega til einskins. En svo byrjaði ég á þessari ræðu, hún átti að vera 8-10 mín. löng. mér tókst að tala í 20 mínútur, þannig að ég varð að sytta þetta alveg heilan helling. En þetta verður alveg ók, því ég er svo frábær og æðisleg og fullt meira, allavega segir Mundi það!!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim